Bók í pósti

Á gær fékk ég senda í­ pósti nýútgefna bók, sem ég minnist hvorki að hafa pantað né að hafa lagt til að öðru leyti. Enginn gí­róseðill fylgdi með og ekkert bendir til að tekið hafi verið af Visa-kortinu mí­nu fyrir henni.

Eitthvað segir mér að á næstu dögum verði hringt í­ mig og ég beðinn um að ritdæma bókina.

# # # # # # # # # # # # #

Er ég eini maðurinn sem botna ekkert í­ því­ hvers vegna Chelsea vinnur alla leikina sí­na? Þegar Arsenal og Man. Utd. voru langbestu liðin í­ ensku, þá skildi maður alveg í­ hverju yfirburðirnir lágu. Ég átta mig alls ekki á því­ með þetta Chelsea-lið. Jújú, ágætis mannskapur – en að þeir vinni hvern einasta leik fyrirhafnarlí­tið er furðulegt.

Stórleikur á laugardag. Luton – Tranmere. Mikilvægasti leikur liðsins í­ 5-6 ár segja menn á spjallþræði stuðningsmanna. Það er hreint ekki svo ótrúlegt.