Það er komin geimvera ofaná tölvuna mína. Það er nánar tiltekið lítil, loðin og græn kúla – með sólgleraugu og loftnet upp úr hausnum.
Geimveran er gjöf frá gesti í Rafheimum, strák sem kom hingað í einkaheimsókn ásamt stuðningsfulltrúa frá skólanum sínum. Hann er mikill aðdáandi Rafheima og var ofboðslega hamingjusamur að fá að útskýra það sem hann vissi fyrir og prufa nýjar tilraunir á staðnum.
Svona heimsóknir eru meðal þess skemmtilegasta sem ég geri í vinnunni. Og ekki spillir fyrir að vera leystur út með gjöfum!