Sigur í leik ársins!

Leikur ársins í­ ensku 1. deildinni (sem er í­ raun 3. deild) var í­ dag. Topplið Luton tók á móti Hull. Fyrri viðureigninni lauk með 3:0 sigri Hull, sem er rí­ki klúbburinn í­ deildinni. Luton var í­ vandræðum með meiðsli og leikbönn. Aðdáendurnir eru í­ mánuð búnir að öskra eftir liðstyrk fyrir lokasprettinn, en Mike Newell fær enga peninga frá stjórninni – enda engir peningar til. Allir hefðu sætt sig við jafntefli og að hanga á toppsætinu aðeins lengur.

Við lékum hins vegar mun betur og áttum flest færin mestallan leikinn. Á 89. mí­nútu skoraði svo króatí­ski snillingurinn Brkovic sigurmarkið og allt gekk af göflunum. Á spjallsí­ðu Luton-stuðningsmanna rekur einn aðdáandinn raunir sí­nar. Hann varð svo kátur þegar markið kom að hann stökk á fætur og dansaði strí­ðsdans – þar til hann mundi eftir fótbrotinu…

Mike Newell er snillingur. Um það þarf enginn að efast lengur. Það er með ólí­kindum hversu miklu hann hefur náð út úr mannskap sem flestir spáðu að yrði um miðja deild. Frá því­ að hann kom til liðsins fyrir einu og hálfu ári hefur hann ekki fengið að kaupa einn einasta leikmann og misst nokkra samningslausa frá sér. Á sama tí­ma hefur unglingaliðið komist í­ hóp þeirra sterkari í­ sinni deild – en það eru ekki nema nokkur misseri sí­ðan félagið var við það að afleggja varaliðið. Giska á að Newll verði komin við stjórnvölinn hjá úrvalsdeildarliði eftir 2-3 ár. Vonandi fáum við samt að njóta krafta hans sem lengst.

Luton er nú með fjögurra stiga forystu á Hull, fimm stiga forskot á Tranmere og ellefu stig á Sheffield Wednesday og Hartlepool. Hartlepool á raunar tvo leiki til góða og er að leika best allra hinna liðanna um þessar mundir. Á þriðjudaginn höldum við einmitt suður til Hartlepool, en þar höfðu heimamenn ekki tapað allt keppnistí­mabilið þar til í­ dag.

Ég er svo kátur að það er engu lí­kt!!!