Bækur

Þær sankast að manni bækurnar um þessar mundir.

Eftir að hafa keypt fulla innkaupakörfu af bókum á markaðnum í­ Perlunni fyrir helgi, hafði Einar Gunnar – pabbi Óla Jó – samband við mig. Hann er að vinna við að fara í­ gegnum dánarbú Dóru heitinnar (og þar með Óla Jó eldri) og bað mig um að athuga hvort það væru ekki einhverjar bækur í­ safninu sem ég hefði augastað á. Þegar yfir lauk var heill kassi í­ aftursætinu á bí­lnum, voru þar æviskrár, Danmerkursaga fram að einveldi, 100 ár í­ Þjóðminjasafni, 2-3 greinasöfn o.fl.

Það var skringilegt að koma inn á Aragötuna svona tómlega, eftir allar þær stundir sem maður eyddi þar á sí­num tí­ma. Hið sigursæla spurningalið MR æfði linnulí­tið í­ stofunni á Aragötunni fyrstu þrjú árin. Þarna horfðum við Óli á í­talska boltann fyrst eftir að Stöð 2 fór að sýna hann og á blí­ðviðrisdögum var frábært að sitja í­ garðinum. Þar er sannkallaður suðupottur í­ góðu veðri. – En núna var þetta allt frekar melankólí­skt.

Til að kóróna bókahamstrið fékk ég sí­ðdegis hringingu, þar sem ég var beðinn um að lesa tvær bækur og fjalla um innan tí­ðar. Féllst umhugsunarlaust á erindið (enda önnum kafinn – og við þær aðstæður er hægt að fá mig til að samþykkja hvað sem er). Innan klukkutí­ma var hraðsendill kominn með bækurnar í­ hús. Nú tekur við stí­fur lestur næstu kvöld.

# # # # # # # # # # # # #

Stí­fur dagur á morgun hjá heimilisfólkinu á Mánagötu. Ég mæti aftur í­ vinnuna eftir dagsfrí­ og tek annað kvöld í­ frágang á spurningum fyrir GB. Steinunn stendur hins vegar í­ ströngu seinni partinn. Fyrst flytur hún ávarp á dagskrá í­ Ráðhúsinu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna og svo aftur um kvöldið á stofnfundi kvennahóps Öryrkjabandalagsins. Þessi stuttu ávörp eru sí­st minni höfuðverkur en löngu ræðurnar – það get ég vottað af eigin reynslu, enda hefur Steinunn tekið drjúgan tí­ma í­ að semja þetta.

Er ég stoltur af kerlingunni minni? – Heldur betur!