Ég hef lofað sjálfum mér að reyna að halda því algjörlega í lágmarki að plaga lesendur þessarar síðu með bloggum um litla gríslinginn.
Þar sem 70% af mínum tíma fer um þessar mundir í að skipta á bleyjum og snattast í kringum téðan grísling, liggur í augum uppi að bloggfærslurnar verða öllu færri og styttri en verið hefur.
Hin 30% af tímanum get ég varla hugsað um annað en fótbolta – nánar tiltekið íslenska boltann sem er að fara í gang.
Nú veit ég að stór hluti lesenda þessarar síðu HATAR fótboltabloggin mín. Skiptir þar engu hvort um er að ræða Luton eða Fram.
En nú er sem sagt búið að vara ykkur við. Ekki búast við neinum vitrænum færslum hérna næstu vikur. Og í Óðins nafni, ekki væla og skæla þegar það litla sem hér birtist mun fyrst og fremst fjalla um sigurgöngu eða hrakfarir Framara. Það er búið að vara ykkur við…