Knattspyrnugetraun

Lí­nuverðir – afsakið, aðstoðardómarar – verða seint taldir skærustu stjörnur knattspyrnuvallarins. Á þessu er þó ein undantekning.

Eitt er þó það land sem kann að meta lí­nuverði að verðleikum. Raunar er svo komið að lí­nuvörður er frægasti einstaklingurinn í­ knattspyrnusögu þessa lands og er þjóðarleikvangurinn kenndur í­ höfuðið á honum.

Nú er spurt: hvert er landið – og fyrir þá klókustu, hver var lí­nuvörðurinn?