Úff, við Framarar vorum rækilega kjöldregnir að Hlíðarenda. Valsmenn eru með hörkulið í ár.
Leikskrá Valsmanna vakti annars sérstaka athygli mína. Hún er átta síður í A5-broti. Þar af fóru tvær síður í auglýsingar, forsíðan í að segja hvaða leikur væri, ein síða í stöðuna í deildinni og tvær síður í að birta leikmannahópa liðanna.
Þá stóðu eftir tvær síður – einu textasíður leikskrárinnar: önnur með ávarpi formanns knattspyrnudeildar – hin með ávarpi umsjónarmanns leikskrár, Framsóknarmannsins Guðjóns Ólafs Jónssonar… með mynd af sjálfsögðu.
Myndi einhver annar en ungur stjórnmálamaður á framabraut skrifa ávarp með ljósmynd í pésa sem inniheldur c.a. eitt A4-blað af eiginlegum texta?
Annars fannst mér Guðjón Ólafur alltaf vera Fylkismaður – og minnti að ég hefði séð hann með Fylkishúfu á vellinum, en það hlýtur að vera misminni hjá mér…
(Leiðrétting, sett inn 1.6. kl. 12:30: Guðjón Ólafur var ekki Fylkismaður – hann var Skagamaður og það gallharður.)