Sem fyrrverandi besta og frægasta bloggara Íslands og jafnvel Norðurlanda, hefur mér sviðið að enginn skuli hafa fengist til að taka við merkinu. Fátt er lúseralegra en að lenda í að gamla djobbið manns sé lagt niður og enginn ráðinn í staðinn.
Loksins hefur það gerst að íslenska bloggsamfélagið hefur eignast nýjan „besta og frægasta bloggara„. Frá þessu var gengið í dag.
Þar með get ég með enn betri samvisku en áður titlað mig sem fyrrum besta og frægasta bloggarann. Ég er orðinn Vigga Finnboga íslenska bloggsamfélagsins.