Þráhyggja Fréttablaðsins varðandi R-listans og framtíð hans heldur áfram. Um helgina var stóra fréttin á forsíðu blaðsins að samstarfið héngi á bláþræði. Við lestur fréttarinnar kom hins vegar í ljós að ekki var rasskat að gerast í málinu, engir fundir haldnir eða neitt.
Á dag er stóra forsíðufréttin að það sé allt í gúddí í R-listanum og mikil bjartsýni og einhugur. Ekkert hefur þó gerst í málinu þennan sólarhring sem leið á milli blaðanna.
Hvað ætli Fréttablaðið nái mörgum innihaldslausum forsíðufréttum um R-listann til viðbótar í þessari viku? Spái því að innan þriggja daga verði forsíða blaðsins lögð undir risafyrirsögnina: „R-LISTINN BííUR FRAM – EíA EKKI…!“
# # # # # # # # # # # # #
Fyrir helgi samþykktu Framsóknarmenn í Reykjavík-norður ályktun um að Salvör Gissurardóttir sé að leggja þá í einelti. Fyndið að ein kona geti lagt heilan stjórnmálaflokk í eineldi. Minnir helst á það þegar ónefndur sauður á Mogganum hélt því fram að vefritið Múrinn væri að leggja Morgunblaðið í einelti. – Þarf eineltispúkinn helst ekki að vera svipaður að stærð og helst stærri en fórnarlambið?
Nema hvað – ég er pínulítið öfundsjúkur út í Salvöru. Enginn stjórnmálaflokkur hefur séð ástæðu til að álykta sérstaklega gegn mér. Samt hefur maður stundum sent Framsókn tóninn. Núna hefur maður þó amk eitthvað til að stefna að.