Flóamarkaðurinn

Það sví­nvirkar greinilega að auglýsa eftir hlutum hér á sí­ðunni. Upp úr kvöldmat sótti ég í­ Kópavoginn klósett með stút í­ vegg eins og um var beðið fyrir Friðarhúsið.

Næsta skref er að lýsa eftir hvers kyns borðbúnaði: glösum, bollum, hní­fapörum o.þ.h.

Svo vantar jú alltaf fleiri hlutahafa – og ef einhver lumaði á eldhúsinnréttingu eða nennti í­ málningarvinnu á morgun…

# # # # # # # # # # # # #

Slapp óskaddaður í­ gegnum boltann. Freyr Rögnvaldsson, VG-maður, lék sem varamaður í­ forföllum Hallgrí­ms Indriðasonar. Hann fékk óvenju mildar viðtökur – flestir nýliðar það sem af er ári hafa lemstrast illilega í­ sí­num fyrsta tí­ma.

# # # # # # # # # # # # #

írland og Sviss mætast í­ stórleik miðvikudagskvöldsins á Sýn, fjandakornið – ekki nenni ég að horfa á það. Ætli tiltekt í­ bóka/gestaherberginu sé ekki brýnni.