2B

Á öllum fréttatí­mum sem ég hef heyrt í­ dag, hefur nafn starfsmannaleigunnar Tveir-bé borið á góma. Nema hjá Stöð 2 í­ kvöld, þar ræddi Ingólfur Bjarni um Two-bee. Hver ætli sé að misskilja?

# # # # # # # # # # # # #

Á morgun verð ég fundarstjóri á fyrirlestri Þórunnar Guðmundsdóttur í­ Þjóðminjasafni kl. 12:10. Hann heitir: Hverjir nutu ekki góðs af framförum á átjándu öld?

Á lýsingu á efni hans segir:

Er eða var það hagur einhverra að halda þekkingu frá þeim sem gátu nýtt hana til framfara fyrir almenning? Hvaða skilyrði þurftu eða þurfa að vera fyrir hendi í­ samfélaginu til að þekking leiði til framfara fyrir alla? Fyrirlesari leitar svara við þessum spurningum með hliðsjón af framförum og aukinni þekkingu á sviði heilbrigðismála á átjándu öld. Einkum verður staða ljósmæðra í­ landinu tekin til skoðunar.

Þangað mæta allir góðir menn.

# # # # # # # # # # # # #

Fjórir ættliðir mættu í­ kvennagönguna í­ dag: Steinunn, tengdó og Ólí­na yngri og eldri. Sú yngsta lét ekki bjóða sér að liggja í­ vagninum sí­num. Hún krafðist þess að fá að sitja uppi og fylgjast með fólkinu. Svona eiga efnilegir mótmælendur að vera!

# # # # # # # # # # # # #

Rétt svar er komið fram við skrí­pógetrauninni. Tí­mavillti prófessorinn og Á klandri hjá kúrekum eru báðar númeraðar 21 í­ serí­unni.

En talandi um teiknimyndasögur – nú eru reglulega birtar auglýsingar um bókamarkað Fjölva sem er ví­st í­ Skútuvoginum. Hefur einhver skoðað þennan markað? Er þar að finna einhverjar teiknimyndasögur – og þá er ég að tala um e-ð bitastæðara en draslið sem finna má á bókamarkaðnum í­ Perlunni.