Orkujarlinn 2005 byrjar með látum. Ef til vill eru spurningarnar mínar of léttar. Á það minnsta liðu ekki margar mínútur frá því að fyrstu vísbendingu var slengt fram og þar til Jóhanna var komin með rétt svar.
Gönguskarðsárvirkjun var svarið, en hún var vitaskuld fyrsta virkjunin með jöfnunarturn. Næsta vísbending hefði fjallað um rangnefnið Gönguskörð, þar sem um er að ræða dal.
En staðan eftir 1. umferð af 18 er því sem hér segir:
Jóhanna Helgadóttir 3 stig
aðrir 0 stig