Orkujarlinn 2005, 1. umferð, 1.vísb.

Jæja, þá er kominn tí­mi til að kynna metnaðarfulla spurningakeppni hér á blogginu. Hún hefur hlotið heitið Orkujarlinn 2005.

Fyrirkomulag keppninnar er sem hér segir:

* 18 umferðir fara fram (eins og í­ Íslandsmótinu í­ fótbolta).
* Sigurvegari hverrar umferðar getur mest fengið þrjú stig ef svarað er eftir fyrstu ví­sbendingu, þá tvö og loks eitt eftir því­ sem ví­sbendingunum fjölgar.
* Að jafnaði getur aðeins einn fengið stig í­ hverri umferð, en dómari áskilur sér þó rétt til að úrskurða að fleiri en eitt svar hafi borist á sama tí­ma.
* Titilinn Orkujarlinn hlýtur sá einstaklingur sem flest stig fær.
* Allar spurningarnar tengjast í­slenskri orkusögu eða orkumálum.
* Svara skal á athugasemdakerfinu hér á blogginu, helst undir fullu nafni – því­ það er svo kauðskt að þurfa að birta stigatöflu sem full er af nöfnum á borð við „Jónsi“; „Garmur“ o.þ.h.

Vindum okkur þá í­ fyrstu umferð, fyrstu ví­sbendingu:

Spurt er um virkjun. Á þrýstivatnspí­pu hennar miðri var reistur fyrsti jöfnunarturn á Íslandi. Hver er virkjunin?

# # # # # # # # # # # # #

Betra er seint en aldrei – segir máltækið.

Ekki er ég samt alveg viss um að Kjartan Magnússon væri kátur ef hann vissi að auglýsingabæklingurinn hans var borinn heim til okkar á Mánagötuna að morgni sunnudags, daginn eftir prófkjörið…