Jæja, þá er kominn tími til að kynna metnaðarfulla spurningakeppni hér á blogginu. Hún hefur hlotið heitið Orkujarlinn 2005.
Fyrirkomulag keppninnar er sem hér segir:
* 18 umferðir fara fram (eins og í Íslandsmótinu í fótbolta).
* Sigurvegari hverrar umferðar getur mest fengið þrjú stig ef svarað er eftir fyrstu vísbendingu, þá tvö og loks eitt eftir því sem vísbendingunum fjölgar.
* Að jafnaði getur aðeins einn fengið stig í hverri umferð, en dómari áskilur sér þó rétt til að úrskurða að fleiri en eitt svar hafi borist á sama tíma.
* Titilinn Orkujarlinn hlýtur sá einstaklingur sem flest stig fær.
* Allar spurningarnar tengjast íslenskri orkusögu eða orkumálum.
* Svara skal á athugasemdakerfinu hér á blogginu, helst undir fullu nafni – því það er svo kauðskt að þurfa að birta stigatöflu sem full er af nöfnum á borð við „Jónsi“; „Garmur“ o.þ.h.
Vindum okkur þá í fyrstu umferð, fyrstu vísbendingu:
Spurt er um virkjun. Á þrýstivatnspípu hennar miðri var reistur fyrsti jöfnunarturn á Íslandi. Hver er virkjunin?
# # # # # # # # # # # # #
Betra er seint en aldrei – segir máltækið.
Ekki er ég samt alveg viss um að Kjartan Magnússon væri kátur ef hann vissi að auglýsingabæklingurinn hans var borinn heim til okkar á Mánagötuna að morgni sunnudags, daginn eftir prófkjörið…