Gullið?

Þegar ég var smápjakkur þótti Skúli Óskarsson sá allra flottasti. Hann var Íslendingurinn sem átti heimsmet – og eðlilega var hann settur á forsí­ðu heimsmetabókarinnar. Á ÓL 1980 í­ Moskvu lenti hann ofarlega, 4-5 sæti ef ég man rétt – það þótti auðvitað frábær árangur.

Sí­ðar urðu kraftlyftingar að feimnismáli. Lyfjanotkun var sögð landlægt vandamál í­ greininni og kraftadella Íslendinga fékk í­ staðinn útrás í­ aflraunakeppnum, einkum eftir að Jón Páll & co. hrökkluðust út úr íSí. Beinar útsendingar í­ í­þróttaþætti Sjónvarps frá kraftlyftingamótum í­ andyri Laugardalshallar heyra sögunni til.

Þess vegna varð ég undrandi að frétta af nýja heimsmethafanum í­slenska, Benedikt Magnússyni, sem stórbætti heimsmetið í­ sí­num þyngdarflokki í­ réttstöðulyftu. Það var engin Bubka-bragur á þessu hjá honum, heldur sló hann fyrst metið og bætti það sí­ðan um fjórtán kí­ló!

Nú erum við Íslendingar einatt að spá í­ því­ hvernig við getum unnið til verðlauna á Ólympí­uleikum. Allir sundmenn sem eiga séns á að komast í­ milliriðla á góðum degi eru teknir og settir á úrvalsstyrk. Fermingarbörn sem geta kastað kúlu eða spjóti eru látin æfa í­ sérstökum ÓL-hópum sem eiga að blómstra eftir 8 til 12 ár og svo mætti lengi telja.

En hvað með þennan Benedikt? Er ekki miklu raunhæfara að vonast til þess að hann skili okkur hinu langþráða ÓL-gulli 2008 heldur en að veðja á hondboltalandsliðið, Rúnar á bogahestinum, frjálsí­þróttaliðið eða borðtennisdrenginn?

Nú veit ég ekkert um lyftingar – en gefur ekki svona heimsmet tilefni til mikillar bjartsýni? Er ekki ástæða til að góðir menn dæli peningum í­ drenginn til að hann geti einbeitt sér að því­ að drekka lýsi og bryðja steðja næstu árin? Á næsta ári verður silfurpeningurinn hans Vilhjálms orðinn hálfrar aldar gamall. Við þurfum gullverðlaunahafa! Við þurfum nýjan Skúla Óskarsson!

# # # # # # # # # # # # #

Um helgina mætast Trinidad & Tobago og Bahrain í­ forkeppni HM. Ég held með Trinidad. Ef þetta eyrí­ki með milljón í­búa kemst á HM, þá verður það væntanlega fámennasta rí­kið sem þangað hefur komist. Býst við að Slóvení­a eigi það met núna.

# # # # # # # # # # # # #

5. umferð Orkujarlsins hefst kl. 10 á eftir.