Jæja, þá eru ístralir komnir á HM, á kostnað Uruguay sem ég hef oft haldið með á stórmótum (vegna aðdáunar minnar á Enzo Fransescoli á sínum tíma).
ístralir léku á HM 1974 (sem einmitt fór líka fram í Þýskalandi). Nú ættu þeir fjandakornið að ná að standa sig betur.
Síðdegis leika svo Bahrain og Trinidad & Tobago um laust sæti á HM. Trinidad eru mínir menn og ef þeir leggja arabana að velli þarf ég ekki að velta því meira fyrir mér hverja skal styðja næsta sumar.