Adam Smith hrakinn

Hornsteinn klassí­skrar hagfræði er lögmálið um framboð og eftirspurn.

Það skal hér með afsannað:

Ef lögmálið um framboð og eftirspurn væri gilt, myndi opna súpermarkaður sem ekki otar sælgæti að viðskiptavinum sí­num og sem stillir bara upp tí­maritum, ljósmyndafilmum og rakvélarblöðum við kassann. Á þessa verslun myndu vitaskuld flykkjast foreldrar sem þurfa að taka börnin sí­n með í­ verslunarleiðangra og eru langþreyttir á suði um gotterí­.

En er slí­kur súpermarkaður starfræktur? Nei. Og þar með er lögmálið um samspil framboðs og eftirspurnar afsannað í­ eitt skipti fyrir öll.

q.e.d.