Alheimsfegurðardrottningin var í Kastljósi áðan. Þegar hún var spurð út í gagnrýni á svona keppnir, svaraði hún að í raun snerist þetta um miklu meira en útlitið – innri fegurð væri í raun aðalatriðið.
Skil ekki alveg punktinn. Hvers vegna ættu andstæðingar fegurðasamkeppna ekki að vera á móti keppni í innri fegurð líka?
Annars rakst ég á það um daginn að keppnin Ungfrú Kanada hefði verið lögð niður fyrir um áratug og ekki endurvakin síðan. Það finnst mér merkilegt.
# # # # # # # # # # # # #
Fór í Blóðbankann í dag ásamt hinum nýbakaða sigurvegara Skrípóspurningakeppninnar. Uppgötvaði að ég hafði síðast gefið blóð í júlí. Þetta er vítavert gáleysi, enda þarf ég að halda vel á spöðunum til að ná stóra markmiðinu: að verða hundraðshöfðingi fyrir fimmtugt!
# # # # # # # # # # # # #
Færsla Kjartans um einkamálaauglýsingar í London Review of Books er snilld. Sérstaklega þessi frá níhilistanum…