Sit einn heima í kotinu með barnið. Steinunn fór ásamt tengdó og Vigdísi mágkonu í skötuveislu til Guðrúnar og Elvars. Sjálfur ætla ég að fá mér samloku með osti í hádegismat. Nokkrir hlutir varðandi skötuát:
* Það er ekkert svalt við að éta skötu á Þorláksmessu og gera mikið mál úr því
* Það er ekkert svalt við að láta eins og manni finnist skatan ekki nógu kæst og hreykja sér af því að koma að vestan, „þar sem menn kunni að búa til almennilega skötu“
* Það er heldur ekkert svalt við að gera mikið úr andúð sinni á skötuáti og segja brandara um skemmdan mat.
* Hins vegar getur verið dálítið svalt að éta skötu hvunndags, án þess að gera úr því neina seremóníu
# # # # # # # # # # # # #
Allir góðir menn mæta í friðargöngu í kvöld. Klukkan 18 í Reykjavík og ísafirði eða kl. 20 á Akureyri.
Nánari upplýsingar má finna í viðtalinu við Steinunni í Fréttablaðinu í dag.
Jamm.