Sum orð hafa þann eiginleika að geta gjörbreytt blæ og merkingu heilla setninga og málsgreina. Orðið meintur er eitt þeirra.
Á fréttunum í kvöld flutti minn gamli skólabróðir, Ingólfur Bjarni, frétt af árás Bandaríkjamanna á þorp í Pakistan. Samkvæmt fréttinni féllu átján í árásinni, en þær upplýsingar fylgdu að í þorpinu hefðu verið bækistöðvar Al-Kaída.
Seinna í fréttatímanum var fjallað um leynilegar fangabúðir CIA í Evrópu, sem notaðar eru til pyntinga – afsakið, …meintar leynilegar fangabúðir CIA.
Þar sem Bandaríkjastjórn ýmist þrætir fyrir eða neitar að svara spurningum um pyntingabúðirnar í Evrópu, teljast þær meintar í íslenskum fréttatímum. En þegar Bandaríkjamenn sprengja upp íbúa í smáþorpi í Pakistan, þá er engin ástæða til að slá slíka varnagla.
# # # # # # # # # # # # # #
Fyrr í kvöld dó þvottavél heimilisins að Mánagötu. Það er því ljóst að eftir helgi munum við halda áfram að auka á einkaneysluna í samfélaginu og gjaldeyrishallann. Ég er strax kominn með samviskubit. Hvað skyldi Einar Oddur segja?
# # # # # # # # # # # # # #
GB-nördar landsins munu hafa tekið eftir því að ég tjáði mig ekkert um fyrstu viðureignir spurningakeppninnar á föstudagskvöldið. ístæðan er sú að ég sat og horfði á Luton tapa naumlega fyrir Úlfunum í verulega bragðdaufum leik.
Sá á bloggi eins af keppendunum að spurningarnar hefðu þótt með þyngra móti miðað við fyrstu umferð (eins og sést raunar af stigatölunum – Hvanneyri lauk keppni með 6 stig). Samkvæmt mínum heimildamönnum voru spurningarnar á mjög klassískum nótum, enda ekki við öðru að búast hjá nýjum dómara í fyrstu umferð.
Menntaskólinn við Sund átti ekki í neinum vandræðum með sinn andstæðing, enda segja kunnáttumenn að MS sé hæglega eitt af 4-5 bestu liðunum í ár.
Verslingar voru meira spurningamerki. Mér er sagt að þeir hafi verið afar sannfærandi í hraðaspurningum en síðan átt erfitt uppdráttar. Þetta er raunar gömul saga og ný með Versló-liðin. Þau æfa betur og markvissar en allir aðrir, sem skilar þeim oft frábærum árangri í hraða – en svo er eins og dýptina vanti í þyngri spurningaflokkunum. Ég hef stundum velt því fyrir mér hver útkoman yrði ef hægt væri að sameina það besta frá Versló og MH – iðnina og dugnaðinn frá Versló annars vegar en mannauðinn í MH hins vegar. Það yrði rosalegt lið!
Egilsstaðir unnu víst Norðfirðinga í þriðju keppninni (þótt Textavarpið hafi snúið úrslitunum við). Stigatalan bendir til þess að ME þurfi að vera heppið með drátt til að komast í sjónvarp, en ég sé á heimasíðu ME að það er stelpa í liðinu. Það eitt og sér nægir til að ég óski þeim alls hins besta. Kynjahallinn í þessari keppni er að verða henni verulegur fjötur um fót.
# # # # # # # # # # # # # #
Á athugasemdakerfinu eru menn að spyrja út í villur sem fundist hafa í Spark-spilinu. Auðvitað verð ég að taka á mig ábyrgðina á öllum þeim villum sem slæddust inn í alla aðra flokka en þá sem ég er sérstaklega ekki skráður fyrir. Miðað við hversu hratt verkið var unnið held ég þó að villurnar séu lygilega fáar. – Hringingar að næturlagi, til að spyrja út í spilið eru afþakkaðar. Það er margt skemmtilegra en ölvað fólk að hringja til að ræða vafaatriði í spurningaspili klukkan hálf tvö að nóttu. (Skyldi Dr. Gunni lenda í þessu líka?)
# # # # # # # # # # # # # #
Ég er að drepast í þumalputtanum eftir að hafa gert skrilljón barmmerki fyrir Ung vinstri græn í Reykjavík. Það er eins gott að grísunum takist að koma þessum merkjum í umferð, því ég er smeykur um að puttinn verði aldrei samur aftur!