Á þessum degi árið 1961 átti eitt fyndnasta atvik enskrar knattspyrnusögu sér stað – þ.e. fyndið í hugum allra annarra en stuðningsmanna Manchester City.
City og Luton mættust í fjórðu umferð bikarkeppninnar og Denis Law var í banastuði. Þótt það rigndi eins og hellt væri úr fötu, skoraði hann sex sinnum í mark Luton – og ómögulegt er að segja hversu mörgum mörkum hann hefði bætt við… ef dómarinn hefði ekki flautað leikinn af vegna bleytunnar á vellinum.
Þetta þýddi að leika þurfti að nýju og í þeim leik fór Luton með sigur af hólmi, 3:1.
Svekkjandi?
# # # # # # # # # # # # #
FRAM byrjar vel í Reykjavíkurmótinu. Unnum Fylki 3:0, það er betra en ég þorði að vona. Verð að skella mér upp í Egilshöll á næstunni og líta á liðið – þó vissulega sé íslenskur fótbolti í janúar/febrúar sjaldnast fögur sjón.
# # # # # # # # # # # # #
Barnið er marið á gagnauga og með kúlu á hausnum. Þetta er afleiðingin af því að hún er farin að reisa sig upp við borð og stóla, iðulega til að fálma eftir einhverju sem þar liggur – og gleymir þá að halda sér á meðan. Með öllum þessu sprikli og hamagangi getur þess ekki verið langt að bíða að mörinn byrji að renna af henni.