Las yfir nokkra kosningabæklinga fyrir vísindasögutímann áðan og svei mér þá ef ég rakst ekki á dæmi um ágreiningsefni milli hreyfinganna! Öðru vísi mér áður brá.
Vökumenn vilja víst taka upp janúar- og júnípróf í Háskólanum. Hvers vegna í fjáranum það á að vera góð hugmynd veit ég reyndar ekki – en jújú, þetta er vissulega stefnumunur…
# # # # # # # # # # # # #
Á morgun fer bíllinn minn á verkstæði. Þar verður þess freistað að þurrka hann upp til að reyna að ná fúkkanum úr aftursætinu, en upp á síðkastið hefur verið nánast ólíft í bílnum vegna fúkkalyktar. Vonandi að það virki. Svo þyrfti ég eiginlega að láta líta á bremsuklossana líka.
Nú væri gaman að vera á fyrirframgreiddum launum.