Ofninn

Painter.jpgÞá er það opinbert: Leiðinlegasta starf í­ heimi er að mála ofna. Það er svo leiðinlegt að heilinn bælir niður minninguna um það að verki loknu, annars myndi maður aldrei hafast út í­ þetta helví­ti aftur.

# # # # # # # # # # # # #

Barnið er með hátt í­ fjötutí­u stiga hita og ég því­ að mestu heimavið í­ dag. Sé fram á rólega helgi, með snýtingum og gólfgöngum. Þá er gott að vetrarólympí­uleikarnir eru að byrja. Væntanlega mun ég fylgjast mun stí­far með keppni í­ skí­ðaskotfimi en til stóð.

# # # # # # # # # # # # #

Leikhús eftir máli er frábær sýning. Allir góðir menn ættu að kaupa sér miða.

Næsta leikhúsferð er fyrirhuguð í­ lok mánaðarins á lokasýningu Túskildingsóperunnar. Þetta verður kúltúrmisserið mikla.