Hvimleiðir þessir laugardagar þar sem öll liðin manns tapa.
Luton steinlá, Hearts missti sinn leik niður í tap og FRAM féll út úr bikarkeppninni í handboltanum. Ekki horfði ég neitt á vetrarólympíuleikanna í dag, þrátt fyrir maraþonútsendingu Sjónvarpsins frá keppni í skíðaskotfimi – eða kannski einmitt vegna hennar.
Barnið er enn með háan hita, en hressist við hverja stikkpillu.
Steinunn er líka að leggjast í flensuna. Þetta er ekki burðugt ástand.