Á fréttunum í gær var rætt við Yoko Ono og Stefán Jón Hafstein. Listakonan ætlar víst að gefa Íslendingum risastórt ljóstyppi sem á að sprauta friði yfir heimsbyggðina. Sérstaða Íslands sem friðsæls lands mun sömuleiðis gera það að öflugum boðbera friðar – friðarljósið mun sjást frá Íslandi. Jafnframt verður stofnað til sérstakra friðarverðlauna.
Stefán Jón var ekki síður spenntur. Hann telur ljóstyppið verða einkennistákn Reykjavíkur, sem kallast muni á við tónlistarhúsið á hafnarbakkanum. Borgarfulltrúinn minnti á að Nostradamus sjálfur hafi talað um ljóssúlu friðar sem koma myndi frá Íslandi…
…á þessum tímapunkti rifjaðist upp fyrir mér að ég hefði heyrt þetta einhversstaðar áður:
Alþjóðleg friðarverðlaun, friðarljós frá Íslandi, miðstöð friðar í heiminum, spádómar Nostradamusar…
…hér er í raun verið að lýsa þeirri sýn sem ístþór Magnússon setti fram í kosningabaráttu sinni 1996 og 1994.
Menn hefðu betur sleppt því að gera svona mikið grín af karlinum. Á það minnsta er Stefán Jón Hafstein genginn til liðs við hann.