Klöguskjóður og sagnfræðileikir

Egill Helgason hnýtir í­ nafnleysingjann sem skellti bréfum Jóní­nu Ben á netið og leggur út af gamalli Sovét-goðsögn. Þar segir:

Eitt af átrúnaðargoðum Sovétrí­kjanna gömlu var Pavlik Morozov, lí­till drengur, Komsomol-liði, sem klagaði pabba sinn til lögreglunnar vegna þess að þau höfðu falið korn – sem bændurnir máttu ekki halda eftir. Pavlik litli var fyrir vikið barinn til bana af í­búum þorpsins þar sem hann átti heima – en siðferðið í­ rí­kinu var svo sérstætt að Pavel (svo!) var gerður að fyrirmynd ungmenna frá Lení­ngrad austur til Sí­berí­u. Það voru reistar af honum styttur, af honum héngu myndir í­ æskulýðsheimilum, sumarbúðir voru nefndar í­ höfuðið á honum.

Eins og með allar svona sögur, verða þær flóknari þegar farið er að rýna betur í­ þær. Opinbera söguskýringin á Sovéttí­manum var ekki ólí­k því­ sem Egill lýsir, nema það voru ættingjar drengsins sem drápu hann (og bróður hans) en ekki óskilgreindur múgur bæjarbúa – þá voru sakagiftir föðursins sagðar skjalafals. Ætli það hafi ekki hljómað háskalegar en að hamstra korni.

Sovésk stjórnvöld bjuggu til sí­na helgimynd af Pavlik og drógu ekki af sér í­ lýsingum á því­ hversu efnilegur piltur hann hefði verið. Andstæðingar stjórnarinnar hrökkluðust sömuleiðis ofaní­ skotgrafirnar. Sagnfræðingar úr þeirra röðum lögðu kapp á að afbyggja alla þætti sögunnar. Þannig drógu þeir upp mynd af Pavlik sem litlum, ljótum, heimskum og ólæsum. (Eins og það breyti neinu um eðli þess verknaðar að framselja föður sinn – hvort viðkomandi sé horaður eða pattaralegur?)

Hjá þessum endurskoðunarsinnum varð það mikið mál að sýna fram á að Pavlik hafi ekki verið í­ Komsomol, einhverjir drógu það fram að hann hefði í­ raun ekki kært pabba sinn til lögreglunnar heldur kennarans sí­ns – sem aftur hafi komið málinu á framfæri. Þessi náungi gekk meira að segja svo langt að gefa í­ skyn að Pavlik hefði verið drepinn af leyniþjónustunni en ekki ættingjum sí­num.

Með öðrum orðum: á sama hátt og sovésk stjórnvöld reyndu að búa til kommúní­ska hetjusögu úr dauða Pavliks, þá reyndu andstæðingarnir að skapa and-kommúní­ska sögu úr þessu sama máli.

Á sí­ðustu árum hafa stórsöguskýringar heldur verið á undanhaldi í­ sögunni. Nýjustu skrif um Pavliks-málið taka mið af því­. Þar er spurningin um hver sé góður kommúnisti og hver vondur lögð til hliðar og þess í­ stað fjallað um málið sem fjölskylduharmleik.

Sú útgáfa sögunnar leggur áherslu á þátt móður Pavliks, sem lenti í­ óhamingjusömu hjónabandi og erjum við fjölskyldu eiginmanns sí­ns, sem taldi hana ekki af nógu góðum ættum. Faðirinn brást sem fyrirvinna, en lagðist í­ kvennafar og er klögumálið talið runnið undan rifjum hinnar sviknu eiginkonu í­ hefndarskyni. Sjá t.d. þessa umfjöllun.

Lí­klega verða ekki margar styttur reistar af Pavlik úr þessu – en hér er augljóslega komið stöff í­ dramatí­ska Hollywood-mynd.

# # # # # # # # # # # # #

Það þarf reyndar ekki að fara 75 ár aftur í­ tí­mann til að finna áhugaverð dæmi um sögutúlkanir.

Á Mogganum í­ dag er sagt frá Fiðluballi MR-inga. Þar segir:

Mikið var um dýrðir í­ Iðnó við Tjarnarbakkann í­ gærkvöldi þegar útskriftarnemendur Menntaskólans í­ Reykjaví­k héldu sitt árlega fiðluball. Stúlkur í­ sí­ðkjólum og piltar í­ kjólfötum dönsuðu um salinn við undirleik strengjakvartetts og skein gleðin úr hverju andliti. Upphaf ballsins er rakið til 19. aldar.

Jahá. Upphaf ballsins er rakið til 19. aldar.

Jú, það má segja að upphafsmennirnir hafi verið einhverskonar 19.aldarmenn í­ hugsun – dugar það?

Fyrsta fiðluballið var haldið á sjöunda áratugnum og átti að vera einhvers konar andóf gegn hippamenningunni eða 68-kynslóðarkúltúrnum. Sr. Geir Waage var ví­st einn af upphafsmönnunum. Þetta ball var haldið aðeins einu sinni.

írið 1992 endurvakti Dagur B. Eggertsson fiðluballið – sem aldrei skyldi verið hafa.

Fimmtán árum sí­ðar halda börnin í­ MR að dansleikurinn þeirra byggist á aldagamalli hefð – en staðreyndin er sú að Spaugstofan er lí­fseigara fyrirbæri en Fiðluballið. Labbakútar!