Reykingar bannaðar í gasklefanum

Guðmundur Andri Thorsson kveður lesendur sí­na í­ Fréttablaðinu í­ dag. Hann skrifar dramatí­skan pistil um að enginn skilji hvað pistlarnir hans séu djúpir og fjalli um málin frá öllum hliðum og að menn séu leiðinlegir við hann í­ fermingarveislum eða heita pottinum í­ Vesturbæjarlauginni vegna þeirra. Að lokum klykkir hann út með því­ að hann sé hættur, farinn og nenni ekki að vera með í­ svona asnalegu leikriti.

Þessi kveðjupistill birtist viku eftir að Guðmundur Andri skrifaði heila grein um það hvað hann hefði fengið slæma þjónustu á Kastrup, þar sem hann át vonda samloku og dönsk búðarloka neitaði að selja honum bjór.

Jamm.