Horfði á þátt um HM í Chile 1962 á Sýn áðan. Þetta hefur lengi verið ein af mínum uppáhaldskeppnum, að hluta til vegna þess hversu lítið ég veit um hana og að hluta til vegna þess hversu „minni spámenn“ létu mikið til sín taka í henni.
Allan fróðleik minn um keppnina í Chile hafði ég fengið úr bókinni um sögu HM sem kom út eftir keppnina 1982 og sem ég las í tætlur sem pjakkur.
Meðal þess sem lesa mátti um í þeirri bók voru hin „maklegu málagjöld“ ítalska landsliðsins. ítalir léku við Vestur-Þjóðverja í fyrsta leik 2. riðils. Þeim leik var lýst sem afskræmingu knattspyrnunnar, þar sem bæði lið léku upp á öruggt, markalaust jafntefli í því trausti að vinna Chile og Sviss í lokaleikjunum. Það hlakkaði því í bókarhöfundi þegar hann lýsti óvæntu tapi ítala gegn heimamönnum sem kostaði þá sæti í fjórðungsúrslitum.
Á þættinum á Sýn var sagan talsvert frábrugðin. Þar var leikurinn sagður fjörugur með færum á báða bóga þar sem hvorugt liðið náði þó að skora. Þessu til sönnunar voru 2-3 góð markskot sýnd.
Hverju á maður nú að trúa? Getur verið að þekking mín á sögu HM sé reist á sandi?