Bring on the Dancing Horses

Echo & the Bunnymen voru langflottastir í­ gær. Hvaða smámennum dettur í­ hug að láta þessa snillinga hita upp fyrir labbakúta?

# # # # # # # # # # # # #

Aðalfundur Friðarhúss er að baki. Eftir vikur er aðalfundur MS-félagsins. Þá fyrst verður hægt að tala um að sumarið sé komið, enda byrjar boltinn degi sí­ðar…

# # # # # # # # # # # # #

Ég hef ekki orðið jafnreiður lengi og þegar ég las í­ Fréttablaðinu um helgina af þeirri fólsku að ætla ekki að hækka launin hjá erlenda starfsfólkinu í­ ræstingunum og eldhúsinu á öldrunarheimilunum.

Mér finnst að það ætti að setja ný lög í­ landinu. Þangað til að við erum farin að borga fólkinu í­ þessum störfum almennileg laun, ætti að sekta hvern einasta mann sem hendir fram tillögum um að selflytja gömul hús úr írbæ í­ Viðey eða reisa vatnsrennibrautagarða fyrir skrilljónir. Daginn sem við erum búin að koma þessum hlutum í­ lag mega menn fara að í­ svona loftkastalasmí­ði.

# # # # # # # # # # # # #

Ég þekki furðu marga Tottenham-menn. Þeim er varla skemmt á þessari stundu…