Fór að velta því fyrir mér í gærkvöldi klukkan hvað sólarhringurinn byrji. Eða öllu heldur – er til eitthvað sem heitir „klukkan núll“?
Af tölvuklukkum heimilisins segir um það bil helmingurinn að klukkan á miðnætti sé 0:00 en hinn helmingurinn að þá sé hún 24:00. Ætli þessi munur sé menningarbundinn? Nú er klukkan á ofninum frá Þýskalandi og segir 24 en þær japönsku veðja á 0:00.
Getur verið að þetta sé angi af stærra ágreiningsefni – svipað og karpið um hvenær aldamótin eru? Þannig telji hluti klukkuframleiðenda að 00:01 sé fyrsta mínúta sólarhringsins en 24:00 sú síðasta, meðan aðrir veðji á 00:00 og 23:59?
Treysti á lesendur mína að efna til lærðra umræðna um þetta mál í athugasemdakerfinu…
# # # # # # # # # # # # #
Sá FRAM vinna Fjölni í gær. FRAM og Þróttur eru því komin með fimm og fjögurra stiga forskot á næstu lið. Sýnist toppbaráttan farin að liggja nokkuð ljós fyrir nú þegar.
Á sunnudaginn mætum við Skagamönnum í bikarnum. Spurning hvort Óli Þórðar verði ennþá með liðið…