Fjórðungsúrslit er flott orð og miklu betra en 8-liða úrslit. Hins vegar væri fíflalegt að tala um helmingsúrslit í stað undanúrslita. Merkilegt.
Fótboltadagurinn mikli er runninn upp. Leikur Þýskalands og Argentínu er sá stærsti á mótinu til þessa. Úkraína gegn ítalíu er heldur ekkert slor. Ég vil sjá þessi undanúrslit:
Argentína : Úkraína & Portúgal : Frakkland.
Hef fulla trú á að það verði að veruleika.
# # # # # # # # # # # # #
Nú eru fjöldamörg blöð og tímarit skönnuð inn á Tímarit.is hjá Landsbókasafni. Það eru þó ekki nema nokkur þeirra sem hægt er að skoða með orðaleitarvélinni. Hvað veldur? Er við því að búast að þeim blöðum sem hægt verður að leita í á þennan hátt fjölgi og hvað með þau sem eldri eru?
Nú er Morgunblaðið orðið það blað sem auðveldast er fyrir sagnfræðinga að leita í. Þetta mun þýða að sagnfræðingar sem skrifa um 20. öldina munu í vaxandi mæli geta fínkembt Moggann í heimildaöflun sinni en munu láta önnur blöð sitja á hakanum. Þetta getur augljóslega gefið villandi mynd.
Legg til að S-hópurinn taki upp veskið og kosti innskönnun á Tímanum eins og hann leggur sig. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið – og Framsóknarflokkurinn verður fljótlega bara sagfnræðilegt viðfangsefni…
Skyldi Mál og menning hafa geymt eitthvað af Rússagullinu? Nú væri gott að hafa það til að koma Þjóðviljanum á tölvutækt form.