Álagningarskrárnar

Minn gamli skólabróðir, Borgar Þór Einarsson, hefur komist í­ nokkur viðtöl upp á sí­ðkastið vegna mótmæla Heimdellinga útaf álagningaskránum. Þeir settu upp leikrit hjá skattstjóra, þar sem þeir létust ætla að teppa skrárnar til að hindra að gestir og gangandi kæmust í­ þær. Ég gef mér að um leið og sjónvarpsmyndavélarnar fóru hafi þeir gefist upp og rölt á Bæjarins bestu.

Sú var amk rauninn sí­ðast þegar Heimdallur greip til þessa ráðs. Það var sumarið 2000 þegar Björgvin Guðmundsson var formaður. Við á Múrnum vorum orðnir þreyttir (bara strákar í­ ritstjórninni þá) á þessari árlegu umræðu og ákváðum að birta þessa grein, með lista yfir tekjur nokkurra ritstjórnarmeðlima og Björgvins Guðmundssonar.

Þegar við röltum niður á skattstofu bjuggum við okkur undir það versta. Þá var að koma hádegi á fyrsta framlagningardegi og Heimdallur hafði boðað að enginn myndi komast í­ skrárnar fengju félagið nokkru um það ráðið. En á skrifstofunni gripum við í­ tómt. Á ljós kom að Heimdellingarnir mættu um leið og opnað var og sátu í­ einn og hálfan tí­ma. Á meðan á því­ stóð komu vinir þeirra, sumarstarfsmenn á helstu fjölmiðlum og tóku myndir og viðtöl. Á ellefta tí­manum var þrekið búið og mótmælaaðgerðunum sjálfhætt.

Þetta hefur mér alltaf þótt snautlegustu mótmælaaðgerðir sögunnar. Minnir dálí­tið á pólití­ska andófsmanninn sem fór í­ hungurverkfall hluta sólarhringsins en mátti éta hvað sem er þess á milli.

Annars var Heimdellingunum vorkunn. Þeir komust auðvitað að því­ á skattstofunni að „álagningarskráin“ er ekki innbundin bók í­ stóru broti og einu eintaki. Skrárnar eru vitaskuld tölvuútprent og til í­ mörgum eintökum, sem þýddi að þótt stuttbuxnadeildin sæti fýld á svip við borð og lúrði á einu eintaki, þá hefði hvers sem vildi getað fengið annað eintak að lí­ta í­.

Hvað skyldu Borgar Þór og félagar hafa þurft að sitja lengi í­ ár? Þrjú kortér? Einn og hálfan klukkutí­ma? Hvað er hádegishléið aftur langt hjá bankastarfsmönnum?

# # # # # # # # # # # # #

Neistaflug um verslunarmannahelgina. Haldið austur á morgun. Er strax farinn að kví­ða yfirvofandi hitabylgju.