Rakst á stórmerkilega skoðanakönnun meðal bandarískra hermanna í írak.
Það er sláandi að sjá að 85% þeirra telja að stríðið í írak sé að miklu leyti til að hefna fyrir þátt íraka í hryðjuverkunum 11. september og álíka fjöldi að íraksstjórn hafi sérstaklega stutt við bakið á Al-kaída.
# # # # # # # # # # # # #
Greiðsluseðillinn frá LíN kom á heimabankann í kvöld. Hann var hærri en ég átti von á. Það er útlit fyrir að maður klári þessi námslán á mettíma.
Grjónagrautur í öll mál í september!
# # # # # # # # # # # # #
Jafntefli HK og Fjölnis færir FRAM einu skrefi nær meistaratitlinum í fyrstu deildinni. Jafntefli gegn Þrótti á morgun (í kvöld) dugar. Með þrjá Þróttara í leikbanni sættum við okkur þó ekki við neitt annað en sigur.