Lemstr

Óskaplega er ég eitthvað lemstraður í­ dag. Lemstr þetta er í­ bakinu. Fékk einhvern hnykk í­ fótboltanum í­ gær, var aðeins aumur þegar heim var komið en vaknaði svo allur lurkum laminn. Gat varla hreyft mig á leikskólanum þar sem barnið er í­ aðlögun. Landið virðist eitthvað aðeins vera að rí­sa. Heitt bað eftir vinnu ætti svo að sjá um restina.

Bakverkir valda mér alltaf paranoju. Pabbi og mamma hafa bæði fengið brjósklos – og fyrir vikið sannfærist ég alltaf við minnstu óþægindi í­ baki um að röðin sé komin að mér og heimta skurðaðgerð.

# # # # # # # # # # # # #

Vek athygli á fundi í­ Friðarhúsi kl. 20 í­ kvöld. Sagnfræðingurinn Vigfús Geirdal ræðir um sögu hermálsins. Lofa fróðlegu erindi og fjörugum umræðum.

# # # # # # # # # # # # #

FRAM-stelpurnar gerðu sér lí­tið fyrir og unnu Hauka í­ Hafnarfirðinum. Þetta er frábær árangur! Mér sýnist handknattleiksdeildin hjá FRAM vera búin að einsetja sér að koma félaginu aftur í­ fremstu röð í­ kvennaboltanum. Það er viðeigandi. Held að ekkert lið eigi eins marga meistaratitla í­ kvennabolta og FRAM.