Ferming unglinga er bæði apaspil (Affenspiel) og vitleysisgangur (Gaukelwerk).
Hafið ekki áhyggjur lesendur góðir – ég er ekki genginn til liðs við Vantrúarhópinn og ætla ekki að stofna til ritdeilna við fyrrverandi eða núverandi guðfræðinema. Ég er bara að vitna í ummæli annars manns um fyrirbærið fermingu. Sá maður hét Marteinn Lúther.
Â
Fermingin var eitt af því sem Lúther var ósáttur við í kaþólskunni. Hann taldi hana ekki eiga sér stoð í Biblíunni og vera guðfræðilega vafasama. Fyrir vikið telst fermingin ekki vera sakramenti í lútherskunni, öfugt við það sem er í kaþólskum sið.
Â
Þrátt fyrir að Lúther hefði ekkert álit á fermingunni sem slíkri, gerðu sporgöngumenn hans ekki mikið til að uppræta þennan sið úr kirkjudeildum sínum. Líkleg skýring á því er sú að menntafrömuðir á borð við Erasmus frá Rotterdam sáu fermingarundirbúninginn sem notadrjúgt tæki til að ná fram almennum menntunarmarkmiðum.
Â
Síðar, þegar dönsk stjórnvöld fóru að huga að menntun þegna sinna og vildu tryggja að allir (í það minnsta karlarnir) gætu stautað sig í gegnum einfaldan texta og jafnvel dregið til stafs, gripu þau til fermingarinnar. Fermingin varð þannig á átjándu öld að eins konar samræmdu lestrarprófi í danska ríkinu.
Â
Það eru öðru fremur þessi menntunarpólitísku markmið danska ríkisvaldsins hér á öldum áður sem valda því að hærra hlutfall unglinga á Íslandi, í Færeyjum og í Danmörku fermast en gerist og gengur í öðrum lúthersum samfélögum. Langt er síðan hlutfall fermdra byrjaði að lækka í Danmörku, einkum í þéttbýli. Til sveita fermast ennþá flestir Danir – líkt og hér á landi og í Færeyjum.
Â
Á ljósi þessa finnst mér alltaf jafnhlálegt þegar skammast er út í borgaralega fermingu á þeim forsendum að þar séu trúleysingjarnir að “stela†kirkjulegri athöfn. Veruleikinn er sá að í samfélögum mótmælenda hefur fermingin lifað VEGNA hins borgaralega eðlis hennar. Það má í rauninni segja að sú fræðsla sem stunduð er í tengslum við borgaralegu ferminguna (alhliða lífsleikni og samfélagsfræðsla) sé rökréttara framhald af þeirri fermingu sem Erasmus frá Rotterdam og síðar upplýsingarmenn 18. aldar stóðu fyrir en sú kennsla sem á sér stað í kirkjum landsins í dag.
Â
Mér finnst þess vegna mun rökréttara að trúlaus börn fermist borgaralega en að lúthersk börn fermist í kirkju. – Og þar hafið þið það!
Â
(Rétt er að taka fram að sjálfur fermdist ég hvorki kirkjulega né borgaralega. Ég svaf út á laugardögum veturinn sem jafnaldrar mínir gengu til prestsins og held að þeim tíma hafi verið betur varið þannig.)