Guðmundur Magnússon skrifar í dag um Norður-Kóreu og leggur út af frægri mynd sem tekin er yfir norðaustur Asíu og sýnir myrkrið í N-Kóreu samanborið við grannlöndin. Þessi mynd hefur margoft birst áður og er meðal annars notuð sem myndskreyting við Wikipediu-greinina um efnahagsmál N-Kóreu.
Kenning Guðmundar er sú að slökkt sé á ljósunum í Norður-Kóreu til að spara rafmagn fyrir kjarnorkuvopnaframleiðslu. Gaman væri að vita hvernig Guðmundur sér fyrir sér að menn spari rafmagn með þessum hætti – ef til vill sér hann fyrir sér gríðarstóra rafgeyma sem ríkisstjórnin keppist við að hlaða á? – En gott og vel, við skulum ekki stríða sagnfræðingnum á eðlisfræðikunnáttunni.
En þar sem ég er nú rafmagnsnörd, kveikti myndin áhuga minn og ég fór að lesa um raforkumál í Norður-Kóreu á netinu. Þar kom margt áhugavert í ljós.
Fyrir tuttugu árum síðan var Norður-Kórea í 22. sæti yfir þau lönd sem notuðu mesta raforku. Suður-Kórea var þremur sætum ofar, en þar sem sunnanmenn eru öllu fleiri var Norður-Kórea með meiri orkunotkun á hvern íbúa.
Þessi tala segir auðvitað ekki mikið um stöðu alls almennings. Stór sveitahéruð munu vera órafvædd í norðrinu, en orkufrek stóriðja heldur uppi meðaltalinu. En þar sem þessar tölur eru oft notaðar sem mælikvarði á hagsæld ætla ég að halda mig við þær.
Nú, tuttugu árum síðar er raforkunotkun á hvern íbúa tíföld í Suður-Kóreu á við Norður-Kóreu. Þetta eru ótrúlega skjót umskipti – ekki hvað síst ef haft er í huga að orkunotkun Norður-Kóreu hélt áfram að vaxa til árisins 1991 þegar hún náði hámarki. Á tíunda áratugnum hrynur orkuframleiðslan hins vegar og nær botni árið 1999, en þá mældist hún um 60% af því sem mest var (myndin á síðu Guðmundar er einmitt tekin árið 2000). Hægfara vöxtur hefur verið í orkukerfinu síðustu árin, en það er þó enn ekki nema á svipuðum slóðum og var í kringum 1980.
Hér rekst ég reyndar á eitt heimildafræðilegt vandamál. Tölur Sameinuðu þjóðanna um raforkunotkun í Norður-Kóreu eru nærri tvöfalt hærri en tölur þær sem birtast í CIA Factbook, sem er aðalheimild Wikipediu í málinu. Þetta er reyndar mjög skrítið þar sem tölur SÞ og CIA eru í langflestum tilfellum mjög svipaðar. Fyrst datt mér í hug að bandaríska leyniþjónustan væri viljandi að lækka tölurnar hjá Kóreumönnum, en það er ólíklegt – t.d. er það ekki raunin þegar kemur að Kúbu og öðrum „útlagaríkjum“. Ég held mig samt við SÞ tölurnar, enda eru þær rökréttari.
Samkvæmt þessu er raforkunotkun á íbúa í Norður-Kóreu öllu meiri en í þriðja heims löndum á borð við Perú og Marokkó, miklu meiri en t.d. Nígeríu og Bangladesh – en þessar 23 milljónir N-Kóreubúa þurfa hins vegar að láta sér lynda álíka mikið rafmagn og átta milljón Búlgarir og nokkuð minna en Danir sem þó eru bara fimm og hálf milljón.
Samsetningin í orkuframleiðslunni vekur líka athygli. Uppsett afl rafstöðva í Norður-Kóreu skiptist nokkurn veginn jafnt á milli olíustöðva og vatnsaflsvirkjanna. Þær síðarnefndu framleiða hins vegar um 70% orkunnar – þar sem olíuskortur kemur í veg fyrir fulla nýtingu hinna stöðvanna. Norður-Kórea og Ísland eru því með nálega sama hlutfall raforkuvinnslu með vatnsafli.
Þurrkar hafa leikið vatnsbúskap Norður-Kóreumanna grátt síðustu árin. Til að spara vatn hefur verið gripið til skömmtunaraðgerða eins og að hætta rafmagnsframleiðslu á næturnar til að safna í uppistöðulónin. Mögulega hefur gervihnattamyndin góða verið tekin á þeim tíma. Það er þó ólíklegt, þar sem ég trúi varla öðru en að eitthvað af virkjununum þarna séu rennslisvirkjanir. Maður veit samt aldrei.
Líklegra er að myndin sé tekin í blakkáti, en auk þess að framleiða ekki næga orku mun flutnings- og dreifikerfið vera úr sér gengið. Rafmagnsleysi – og jafnvel allsherjarrafmagnsleysi af völdum bilana eru því tíð í kerfinu.
Á sama tíma og raforkukerfi Norður-Kóreu heldur áfram að drabbast niður, blæs kerfið út sunnan landamæra. Suður-Kórea er ellefti mesti raforkunotandi í heimi og með mjög mikla höfðutölunotkun – meiri en sum af stóru iðnríkjum Vestur-Evrópu. Sá vöxtur er að mestu knúinn áfram af kjarnorkuverum, sem stjórnin í Suður-Kóreu hefur fengið að koma upp með aðstoð Bandaríkjanna.
Það er nú svo.