Kannastu við kauða? – II.hluti, fyrsta vísbending

Þá er komið að 2.spurningu af 13. Sem fyrr er spurt um mann.

Á seinni hluta áttunda áratugarins var samið lag um þennan mann. Þar var sagt um andstæðinga hans að þeir dönsuðu fláttarskapspolka og fantaræl.

Hver er maðurinn?

Viðbót kl. 23:00

Þetta var kannski aðeins of þungt hjá mér. Ókey, smáaukaví­sbending:

Bók sem komið hefur út um manninn fær nafn sitt úr texta dægurlagsins. Hver er maðurinn?

# # # # # # # # # # # # #

Glæsilegur sigur á Birmingham. Luton komið í­ 7da sæti. Verst að nú munu stóru liðin öll slást um að kaupa Rowan Vine. Hann er lí­klega besti framherji deildarinnar um þessar mundir og verður kominn í­ úrvalsdeildina innan skamms. Vonandi þó ekki á þessari leiktí­ð.