Mamma hefur tekið forystu í þessari æsispennandi spurningakeppni. Hér var ekki ljóðað á klerka, heldur Hannes Hólmstein Gissurarson. Kveikjan var einhver frægasta fréttamynd Íslandssögunnar, af Hannesi Hólmsteini gægjast fyrir horn Dómkirkjunnar til að fylgjast með útifundi BRSB í verkfallinu 1984.
Vísan er birt í heild í bókinni Verkfallsátök og fjölmiðlafár eftir Baldur og Jón Guðna Kristjánssyni. Hún er þrjú erindi:
Við dómkirkjuhornið er dulítið skjól
og dolfallinn maður í skjólinu hjarir
með opið í hálsinn í októbersól,
uppglennta skjáina og titrandi varir,
hrollandi í bitru á helfrosnum tám,
hnýttur af kulda með rennsli úr nefi,
dofinn í krikum og dofinn í hnjám,
djúpt oní vösum er krókloppinn hnefi.
Það gustar um Hannes H. Gissurarson
á gægjum við hornið að snapa eftir fréttum.
Á svip hans er spurning og veikburða von
um Valhallarsigur á Béserrbé-stéttum.
Hann leynist í skugga, hann vokir, hann veit
það er vissast að taka ekki áhættu neina
sva fjarri öllum vinum í frjálshyggjusveit,
þeim Friedman og Hayek og Davíð og Steina.
Úr bókviti malar hans krambúðarkvörn
í kapítalistanna gullpyngjur digrar,
en gott er að hafa af guðshúsi vörn
ef gerast þau ósköp að jafnréttið sigrar.
En Hannes minn Hólmsteinn þótt kenning sé klár
mun Kristur ei taka neitt mark á þeim orðum,
og uppi þú verður jafn einmana og smár
og eitt sinn á dómkirkjuhorninu forðum.
+++Â
Staðan:
Ingibjörg Haraldsdóttir 1 stig
aðrir minna.