Jæja, best að vinda sér í fjórðu umferð af þrettán. Guli skugginn spurði hér í athugasemdakerfinu hvort ekki yrði bráðum spurt um konu. Ég er ekki viss um að neinar kvenpersónur rati inn í þessa keppni – er hægt að nota orðið kauði um kvenmann? Hvert væri samsvarandi kumpánalegt orð fyrir kvenkynið? Kannastu við kellu?
En í fjórðu spurningu er sem sagt spurt um karlmann.
Hann breytti skírnarnafni sínu ungur að aldri. Skýringuna sagði hann vera þá að hrekkjalómar hefðu snúið út úr nafninu og látið það hljóma líkt og heiti á trúði. Trúður sá er alþekktur í evrópskri brúðuleikhúshefð – kroppinbakur með stórt nef.
Hvaða maður er þetta?
# # # # # # # # # # # # #
Ég minnist þess ekki að hafa fengið annan eins kjánahroll og í kvöld þegar sýnt var frá „hryðjuverkaæfingu“ sérsveitar lögreglunnar. Er ég einn um það?
# # # # # # # # # # # # #
Á dag prufaði ég nýja íslenska bjórinn frá írskógsströnd. Þetta er bjór sem bruggaður er í anda tékkneskra bjóra.
Framleiðendurnir hafa lýst bragðinu á þann hátt að bjórinn minni á Pilsner Urquell. Ég er ekki sammála. Hann minnir mig meira á Budwar.
Ég hef bragðað betri tékkneska bjóra. En hins vegar er óhætt að segja að þetta sé einhver besti íslenski bjór sem ég hef bragðað. Kaldi frá írskógsströnd á eftir að rata oftar í ísskápinn á Mánagötunni.
# # # # # # # # # # # # #
Úr því að ég er farinn í vörumerkjaplögg er eins gott að nota tækifærið og mæla með nýju uppáhaldsfiskbúðinni okkar Steinunnar. Það er Hafberg, sem er gegnt Menntaskólanum við Sund. Við höfum þrívegis keypt fiskrétti þar á síðustu dögum frá því að nafni minn Hagalín mælti með versluninni. Á hvert einasta skipti höfum við fengið afbragðsmat – og verðið er sanngjarnt miðað við það háa fiskverð sem tíðkast almennt.
# # # # # # # # # # # # #
Á ljósi þess að svarið við síðustu spurningu er komið fram, er víst óhætt að upplýsa hver er bókin á náttborðinu. Það er vísindasögurit sem fjallar um aðstoðarmenn Tycho Brahe og vísindasamfélag hans á eyjunni Hven.
Ég er núna að lesa talsvert um bæði Kepler og Tycho. Sverrir fór til Póllands í haust á slóðir Kóperníkusar og hefur eflaust drukkið í sig fróðleik um þann mikla meistara. Ég geri því fastlega ráð fyrir frjóum kennslustundum þegar kemur að því að fjalla um sólmiðju/jarðmiðjukenningu í vísindasögunámskeiðinu á vormisseri.
Rétt er að benda háskólanemum sem lesa þessa síðu á að námskeiðið er öllum opið – líka hugvísindanemum. Raunar myndi ég segja að sagnfræði- og heimspekinemar hefðu gott af þessu. Auk þess sem ég tel að mannfræðinga, félagsfræðingar og þjóðfræðingar ættu líka erindi.