Þegar fimm umferðum er lokið af þrettán í þessari skemmtilegu spurningakeppni, skiptast stigin á jafnmarga aðila. Gaman verður að sjá hvort enn á eftir að fjölga í þeim hópi eða hvort einhver nær afgerandi forystu.
Staðan:Â
1 stig; Ingibjörg Haraldsdóttir, Nanna Rögnvaldardóttir, Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir & Páll ísgeir ísgeirsson.
Aðrir minna.
Víkjum þá að sjöttu spurningu:
Maðurinn sem um er spurt kom til Íslands á vormánuðum 1987. Koma hans vakti enga athygli – sem vonlegt var.
Ekki er vitað til að maðurinn hafi komið aftur til Íslands. Hann er þó mikill heimshornaflakkari og hefur tvívegis sótt sér kvonfang til þriðja heimsins – til Indlands og Karabíska hafsins.
Hver er maðurinn?