Staðan eftir átta umferðir af þrettán:Â
2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir.Â
1 stig: Nanna Rögnvaldardóttir, Arndís Dúnja, Þórdís Gísladóttir, Páll ísgeir ísgeirsson, Benedikt Waage & Finnbogi Óskarsson.
Níunda spurning:
Maðurinn sem um er spurt skrifaði:
Gæfa mín hefir verið meiri en flestra annarra. Hefir hún fylgt mér frá upphafi og til þessa dags.
Fótabæklun sú, er ég hlaut í fæðingu hefir orðið mér gæfa. Henni á ég það að þakka, að ég hefi skilið betur aðra menn og sérkenni þeirra en ella, en sá maður, sem skilur aðra, hefir losnað úr andlegum einbýlishætti. Hann tekur þátt í mannlegri samhyggð og er hamingjusamur.
# # # # # # # # # # # # #
Á síðustu viku hágrét barnið þegar það var skilið eftir á leikskólanum og svikabrigslin í augnaráðinu voru yfirþyrmandi. Á morgun ætlaði ég að spjalla við Boggu yfirfóstruna á gulu deildinni (jájá, ég veit að það heitir leikskólakennari), þegar Ólína sneri sér við og veifaði mér bless – sem kurteislega ábendingu um að nærveru minnar væri ekki óskað lengur…
Ætli það sé ekki bara tímaspursmál hvenær hún flytur að heiman?