Kannastu við kauða? Úrslit IX umferðar

Ég er svo aldeilis bit! Ekki átti ég von á því­ að þessi spurning félli á fyrstu ví­sbendingu, en glæsilega gert hjá Nönnu!

Hendrik Ottósson var maðurinn. Tilvitnunin (sem er gúggl-held) var fengin úr niðurlagsorðum Vegamóta og vopnagnýs. Þetta eru falleg orð og með flottari tilvitnunum.

Næsta ví­sbending var ekki alveg tilbúin en hefði verið eitthvað á þessa leið:

Það væri ef til vill fulldjúpt í­ árina tekið að kalla mann þennan njósnara, en hann safnaði þó upplýsingum um nasista og kom þeim á framfæri til fulltrúa erlendra rí­kja.

Þriðja ví­sbending hefði tengst sí­ldarsölu og upphafi viðskiptasamninga við Sovétrí­kin. – Eða eitthvað um Gvend Jóns og félaga…

Staðan eftir ní­u umferðir af þrettán: 

2 stig: Ingibjörg Haraldsdóttir & Nanna Rögnvaldardóttir. 

1 stig: Arndí­s Dúnja, Þórdí­s Gí­sladóttir, Páll ísgeir ísgeirsson, Benedikt Waage & Finnbogi Óskarsson.