Maðurinn sem um er spurt hlaut menntun sína í Prag, en einnig í París og Köln samkvæmt sumum heimildum. Hann var því í hópi menntuðustu manna sinnar tíðar.
Maður þessi var frumkvöðull í baráttu gegn mansali og kom fórnarlömbum þess til hjálpar.
 # # # # # # # # # # # # #
Datt inn í viðtal við Guðfinnu Bjarnadóttur á Útvarpi Sögu á leiðinni í vinnuna. Þar spurði dagskrárgerðarmaðurinn út í afstöðu frambjóðandans til Evrópusambandsins.
Svarið byrjaði eitthvað á þessa leið: „Nú er ég alveg sannfærð um að í framtíðinni – hvort sem það er eftir nokkra áratugi eða nokkrar aldir, þá munum við fá eina alheimsstjórn.“ Svo hélt hún aðeins áfram að lýsa þessari framtíðarsýn um veröld þar sem jörðin væri eitt þjóðríki – en bætti svo við að mannkynið væri kannski ekki búið að ná þessum þroska ennþá og í millitíðinni mætum við okkar stöðu… blablabla… meiri hagsmunir fyrir minni… blablabla… og svo framvegis.
Ég komst helst að þeirri niðurstöðu að frambjóðandinn vilji ganga í Evrópusambandið daginn sem heimsbyggðin verður farin að hugsa eins og John Lennon.