Jæja, þrír lentu í efsta sæti í þessari skemmtilegu spurningakeppni. Þar sem afdráttarlaus úrslit fengust ekki í þrettán spurningum hef ég ákveðið að grípa til framlengingar. Hún verður með þeim hætti að haldið verður áfram að spyrja um menn, þar til einhver þátttakandi nær þremur stigum – það þýðir að Ingibjörg, Nanna og Gísli þurfa aðeins að svara einni spurningu rétt til að vinna, en aðrir ýmist tveimur eða þremur.
Á fyrsta hluta framlengingar er spurt um mann. Hann starfaði um tíma sem huglæknir og spámaður í Belgíu og kallaði sig þar Emarson. Það er fjarri því eina dulnefnið sem hann notaði um ævina.
Kannist þið við kauða?
# # # # # # # # # # # # #
Ólína fór í 18 mánaða læknisskoðun í morgun. Dómur heilbrigðiskerfisins er á þá leið að barnið sé aðeins yfir meðallagi stórt, rétt yfir meðallagi þungt og nokkuð skýr miðað við aldur.
Hljómar þetta ekki nákvæmlega eins og lýsing á pabba hennar?