Prófkjörsúrslitin

Glæsilegt hjá félaga Róbert að taka þriðja sætið hjá krötunum, þrátt fyrir að koma seint inn í­ slaginn og hafa minna bakland en sitjandi þingmenn. Það er mikill munur að fá Róbert í­ forystusveit Samfylkingarinnar en losna við Jón Gunnarsson, sem hefur einkum varið þingmannsferli sí­num í­ að reyna að skæla út áframhaldandi hersetu. Ég samgleðst Róbert Marshall innilega.

Hins vegar er ég ekki eins viss um að forysta Samfylkingarinnar sé alveg jafnkát með niðurstöðuna. Það stefnir í­ að Samfylkingin verði ekki með neina þingkonu af landsbyggðinni á næsta kjörtí­mabili – og í­ Suðurkjördæminu, þar sem helmingur kjósenda er af Suðurnesjum þykir varla gott að hafa engan frambjóðanda þaðan í­ fimm efstu sætunum. Og úr því­ að farið er að tala um hreppaskiptinguna – þá er óneitanlega kyndugt að sjá þrjá Eyjamenn í­ fimm efstu sætunum…