Réttur

Fyrir svefninn í­ gær las ég í­ fyrsta heftinu af Rétti, sem Þórólfur í­ Baldursheimi gaf útgáfu á 1916.

Þetta er verulega óvenjulegt blað fyrir sinn tí­ma. Fjallar nær einvörðungu um pólití­k í­ ví­ðum skilningi og einkum um hugmyndafræði í­ staðinn fyrir sjálfstæðisbaráttustaglið sem komið var í­ algjöra blindgötu á þessum árum.

Markmið Þórólfs var að kynna fyrir Íslendingum heilsteypta pólití­ska hugmyndafræði sem byggði á þremur meginstoðum: jafnaðarmennskunni, samvinnustefnunni og kenningum Henry George. Georgisminn er sérkennileg stjórnmálastefna, sem var nú fulltæknileg og þröng til að verðskulda -isma viðskeytið.

Athyglisvert var að lesa greiningu ritstjórans á strí­ðinu, sem hann taldi rökrétta framlengingu á óheftri samkeppni. Óheft samkeppni í­ viðskiptum var að mati Þórólfs birtingarmynd af ofbeldi og samfélag rekið á slí­kum forsendum hlyti að leiðast út í­ stórstyrjaldir eðli málsins samkvæmt.´

Fáir hugmyndafræðingar hafa farið jafnrækilega úr tí­sku á tuttugustu öld og Henry George.