Á kvöld eru fimm ár liðin frá því að óður maður gekk berserksgang með sveðju að Hringbraut 119, eins og lesa mátti um í helstu fjölmiðlum. Sami óknyttadrengur ók í gegnum bílskýlishurðina í bílageymslunni þetta kvöldið og rústaði henni. Hreinn gjaldkeri varð miður sín og skrifaði væntanlega sérstakan pistil í húsfélagspóstinn að þessu tilefni.
Þetta kvöld dró fleira til tíðinda á Hringbrautinni. Eftir velheppnaðan vinnufund SHA, með viðkomu á Næsta bar, fórum: ég, Sverrir, Palli, Stefán Jónsson og Steinunn í gömlu íbúðina mína í gamla verksmiðjuhúsnæði Jóns Loftssonar. Sverrir, Palli og félagi Stefán fóru fljótlega heim. Steinunn varð eftir.
Þessi fimm ár hafa verið fáránlega fljót að líða – en samt verið svo ótrúlega viðburðarík. Held að það sé ekkert tímabil á ævinni sem ég man í jafnmiklum smáatriðum og þessar fyrstu vikur. Fyrsta vídeóspólan sem við leigðum var Kiss of the Spider Woman – sem var talsvert úr karakter miðað við draslið sem annars var boðið upp á í Bónusvídeói í ínanaustum.
Einhvers staðar í vinnutölvunni á ég líka alla tölvupóstana frá þessum síðustu tveimur vikum í nóvember, sem flakka á milli þess að vera hálfkauðskt daður og óskaplega vandræðalegar samningaviðræður um hvort við ættum að elda saman kvöldmat eða hittast bara seinna um kvöldið – helst þá á Næsta bar, sem var félagsheimilið 3-4 kvöld í viku.
Held að ég hafi aldrei lent í stærri sálarangist en þegar komið var fram í miðjan desember. Hversu stóra gjöf gefur maður sex vikna gamalli kærustu? Mig minnir að ég hafi endað á að teyma Þóru systur með í ilmvatnskaup. Steinunn var töffaralegri. Hún gaf mér Litla prinsinn, bók sem vantaði tilfinnanlega í bókaskápinn. Núna eigum við tvær.
Fimm árum seinna sit ég á Mánagötunni og hlusta á Echo & the Bunnymen og drekk Highland Park – eins og yfirleitt þegar ég er í væmnu skapi. Þótt Norðurmýrinn sé talin vafasamt hverfi hef ég aldrei orðið var við óða sveðjumenn sem keyra á bílskýlishurðir. Held að nágrannarnir séu heldur ekki jafngefnir fyrir að berja konurnar sínar og leiðindagaurinn á Hringbrautinni, sem var stökkt á flótta af ítalska folanum (saga sem bara elstu lesendur þessa bloggs kveikja á).
Það er fínt að vera vera ástfanginn í Norðurmýri í skítakulda í nóvember.