Tafarlaust

Á Blaðinu í­ morgun skrifar Bjrögvin G. Sigurðsson grein um Suðurlandsveg. Hún ber yfirskriftina: Tafarlaus tvöföldun þolir enga bið. Nú hefði ég haldið að það lægi í­ skilgreiningu hugtaksins tafarlaust að það sem til umræðu væri þyldi enga bið – en ekki ætla ég að rí­fast við manninn sem skrifaði hinn eftirminnilega pistil Orð eru dýr í­ Stúdentablaðið um árið.

Ef ég man rétt var sá pistill rammaður inn og hengdur upp á vegg í­ lesstofu framhaldsnema í­ í­slensku í­ írnagarði á sí­num tí­ma.