Jæja, þá er tímafrekt verkefni að baki. Síðustu vikurnar hef ég setið við og barið mig í gegnum fræðibækur sem tilnefndar voru til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Útkoman var ágæt og ansi nærri því sem orðið hefði ef ég hefði verið einráður. Þessi nefndarseta hefur hins vegar eyðilagt jólin fyrir mér í þeim skilningi að nú hlakka ég ekki til að sökkva mér oní eina einustu jólabók. Reyndar gæti ég ennþá lesið skáldsögur mér til skemmtunar, ef einhverjar spennandi eru í boði. Annars gætu þetta orðið jólin sem ég hundskast loksins til að lesa almennilega í gegnum bréfasafn langafa sem ég hef haft í mínum fórum í mörg ár. Um daginn fékk ég hringingu frá eldri manni frá Tálknafirði, frænda mínum, sem fór að spyrja mig úr í langafa. Ég þurfti að játa skammarlega fáfræði mína. – Jú, líklega eru þetta jólin til að bæta úr þessu. Annars lauk kvöldinu á því að ég hálfpartinn tók að mér verkefni sem kallar á enn meiri fræðibókalestur.