Sigurður Magnússon er kominn með eitt stig í þessari skemmtilegu keppni.
Andrésína er, smkv. Andabæjar-ættartré Disney-teiknarans Don Rosa, föðursystir þeirra Rip, Rap og Rup – en Andrés er móðurbróðir þeirra.
Andrésína er sömuleiðis móðursystir þríburasystranna sem á ensku heita April, May og June – en togarar Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar hétu einmitt mánaðarnöfnum.
Næsta spurning kemur um helgina. Líklega á morgun.